|
06.10.2009 10:31:45 / familienholm
Það er voða lítið að gerast á þessarri síðu okkar. Við erum öll komin á andritið/snjáldurskinnu/feisið. Þannig að þar gerist núna mesta aksjónið. Tékkið endilega á okkur þar.
»
25.05.2009 23:10:37 / familienholm
Þá er skólinn alveg búinn hjá mér í bili. Ég fékk viku í frí og fór síðan að vinna í dag á dagdvölinni og verð þar í sumar :-) voða ánægð að vera með vinnu. Krakkarnir eiga eftir tvær vikur og þá eru þau komin í frí. Þau skella sér líklega með pabba mínum norður ´aAkureyri í smá dekur hjá langöm mu og langafa. Kalli er enn að skólast og er held ég að verða frekar geðveikur á þessu einsog allir aðrir í bekknum hans. Hann útskrifast 6. júní þannig að það verður stór dagur hjá okkur. Litli sæti frændinn okkar hann Arnar Kári verður eins árs núna eftir nokkra daga, þannig að það er bara stuð framundan hjá okkur.  Allir í stuði og endilega að kvitta í gestabókina gott fólk.
»
02.05.2009 12:07:31 / familienholm
Það líður að lokum hér hjá okkur á Ásbrú. Kalli er að fara á fullt í próf núna í komandi viku. og fer síðan í tveggja vikna sumarlotu í félagsfræði og þýsku. Ég er búin með þau próf sem ég tek. En er að skrifa nokkrar ritgerðir. skiladagar á þeim eru 3 10 og 15 maí og þá er ég búin. Og þá er bara að setjast g bíða eftir einkununum.... það er oft það erfiðasta.... Annars er bara allt ágætt að frétta héðan, ég er komin með vinnu og byrja síðustu vikuna í maí, en Kalli er ekki komin með neina vinnu enn, en það kemur að því. Krakkarnir dafna og stækka, Agnes Lára er fermd og Daníel Freyr stækkar og stækkar. :-) Jæja best að skella sér aftur í námið, er að skrifa rosa skemmtilega ritgerð í kynjafræðinni. Erum tvær og erum að greina ævintýri, skoða kynhlutverk og svoleiðis. Strákurinn fær alltaf prinsessuna og hún þarf alltaf að láta bjarga sér... og
"það
má líka bara lesa ævintýrin og trúa þeim sem sönnum og náttúrulegum staðreyndum
um frábæran ævintýraheim, heim sem allar konur þrá og vilja öðlast. Þar sem
lokatakmarkið er að rétti maðurinn finni þig og veiti þér eilíft líf sælu og
hamingju í hinu fullkomna hjónabandi. Þar sem lífið verður dans á bleikum
rósaskýjum í bleikum prinsessukjólum að hætti Disney." (Björk Erlendsdóttir, 2009) />
»
31.03.2009 12:54:01 / familienholm
Jæja nú styttist í ferminguna hja frumburðinum. Allt er þetta að smella saman. Búið að skipuleggja og plana og æfa greiðsluna og bara allt. Vinkonur Agnesar Láru eru að koma frá Noregi og það er bara mjög mikil spenna i gangi. og á meðan á þessu stendur er maður að bögglast við að læra eitthvað líka...  Ég ætlaði að læsa síðunni okkar en það er eitthvað bögg með email adressu hjá mér þannig að það gekk ekki, ekki þá nema ég stofni bara nýtt blogg og ég er ekki alveg að nenna því núna. Þannig að ég hef bara þetta blessaða blogg opið og það vverður bara að hafa það  Endilega kvittið f. komu ykkar, það er gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með manni....
»
24.03.2009 22:05:45 / familienholm
Af ákveðnum ástæðum hef ég tekið þá ákvörðun að læsa blogginu okkar.
Þið sem hafið sent okkur meil og fengið lykilorðið, verið áfram velkomin í heimsókn hingað til að fylgjast með því sem gerist hér hjá okkur.
Kv. Við...
»
19.03.2009 13:10:16 / familienholm
Skellti mér á kransakökugerðarnámskeið í gær með múttu minni. Lærðum að búa til kransaköku, setja saman og skreyta. Það var ótrúlega gaman, og ekkert svo erfitt. hún er ekki gerð í svona kransakökuformum, heldur bara rúlluð í höndunum a´la "kransekagehuset" í danmörku.
Svo bjuggum við til skraut úr bræddu súkkulaði og gaman. Við fengum að sjálfsögðu ekki nóg á námskeiðinu þannig að við keyptum auka deig og ætlum að búa til meira....
Annars er allt á leiðinna að smella saman f. ferminguna. Feðgarnir skella sér í klipp í dag og við mægðurnar í næstu viku. Förum svo til ljósmyndara á föstudaginn. Það er búið að skipuleggja þetta að mestu leyti og nú þarf bara að framkvæma.
Sendum út alveg bunch af boðskortum og nokkrir hafa nú þegar afboðað komu sína, einsog við er að búast. Það lítur út f.að meirihlutinn af nánustu fjölskyldu Kalla verði í útlöndum, 3 heilar fjölskyldur sem búa þar. En AL fær alveg spes heimsókn frá Norge. Irja Lind vinkona hennar ætlar að koma og vera hjá okkur í tæpa viku. AL er að deyja úr spenning. held henni finnist meira spennandi að fá Irju Lind í heimsókn heldur en að fermast....
En já þetta verður bara gaman. Mamman og pabbinn eru alveg að smella í gír og þá fer allt að ganga. aðalatriðið er að vera ekkert aðstressa... þetta á allt eftir að ganga vel.
»
05.03.2009 20:39:05 / familienholm
Ég er búin að vera að læra í ALLAN dag. (með stuttum hléum á facebook). Er að fara í próf á morgun í kynjafræði, lokapróf sem gildir 25% og það er sko alveg geðveikt mikið að lesa.
Held í alvöru að ég sé búin að gleypa svona ca 400-500 blaðsíður. og það er ekki ýkjur. En það vill til að þetta er ekki leiðinlegt námsefni, mér finnst actúallý gaman að þessu. Er svona að pæla í að fara að hætta þessu, en verð að klára allavega 3 greinar áður. Greinar sem ég er að frumlesa....
En þetta gengur vonandi allt bara vel og þá get ég farið að einbeita mér að því að undirbúa ferminguna, það er víst helling eftir þó ég sé búin að gera fullt.
Verð að viðurkenna að ég tek líka stuttar pásur inná milli til að kíkja á myndir af sætasta frænda mínum, honum Arnari Kára. Hann er orðinn svo STÓR, farinn að sitja og reyna að koma sér afturábak og áfram. Hann er bara sætastur og yndislegastur.
Og svo á morgun er stór dagur... Ég og minn heittelskaði erum þá búin að vera gift í heil 10ár... ótrúlegt. og saman í einhver 17 he he he... bara gaman. Og við ekki ennþá orðin leið hvort á öðru...
Jæja bakk tú ðe búkks...
»
02.03.2009 11:06:28 / familienholm
Er einhver sem veit hvað ein tvöföld (ferköntuð) brauðterta dugar f. marga?????????
Eða líka spurning hvort það sé hægt að finna eitthvað svona á netinu, s.s. skammtastærðir eða eitthvað svoleiðis... ég hef ekki ratað á það sjálf ennþá..
Endilega hjálpið mér með þetta.........
»
26.02.2009 21:07:11 / familienholm
Já það er orðið soldið langt síðan ég skrifaði eitthvað hér en ég ætla að reyna að bæta aðeins úr því núna.
hérna hjá okkur er fermingarundirbúningurinn á fullu, (ég vil vera tímalega í þessu). við erum erum öll búin að versla það sem við ætlum að versla af fötum, vantar bara skó á DF. við erum búin að gera boðskort og senda þau. 70 manns... það er slatti af fólki sem maður þekkir, og ekki höfum við heldur pláss til að bjóða öllum, veislan verður hér eheima hjá okkur. Það er búið að panta köku og servíettur og kerti og dúka og allt svoleiðis og við höfum ekki miklar áhyggju af því að ná ekki að gera allt áður en STÓRI DAGURINN rennur upp.
það er að skapast soldil spenna hérna hjá henni AL og ekki síður hjá okkur foreldrunum. En þetta verður bara gaman og vonandi góður dagur, enda ætlum við að gera allt til að litla stelpan okkar fái eftirminnilegan og yndislegan dag.
Kalli er á fullu í skólanum og ég lika. Það er alltaf nóg að læra, sérstaklega af því að ég er í 3 kúrsum sem eru próflausi. Þannig að það er fullt af verkefnaskilum og framsögu í tímum.
Ég er komin með vinnu í sumar og byrja að vinna um miðjan maí. Það er nú heldur betur gott að fá vinnu í kreppunni ógurlegu.
Já já, meira seinna.
Endilega kvittið í gestabókina gott fólk...
»
21.01.2009 09:06:17 / familienholm
NÝJAR MYNDIR ALBÚMIÐ HEITIR KALLI 40 OG.......
»
21.01.2009 08:39:32 / familienholm
Sælt veri fólkið.
Þar sem aðalfréttaveita fólks á Íslandi í dag er "facebook" því þar eru "allir".(meira að segja Kalli er kominn á feisið) Þá gleymir maður stundum þessum gömlu og góðu bloggsíðum. En hér er ég að skrifa fréttir. (dugleg ég)
Ég er hætt að vinna og er bara skólastelpa núna. Það er fínt. En ég er nú samt að reyna að leita mer að 30% vinnu því námslánin á Íslandi eru langt f. neðan minnstu laun, og ekki beint til að lifa á ef maður á 2 stykki börn einsog við hjónin eigum. og ekki hjálpar það að nú erum við bæði (hjónin) á námslánum. en pytt pytt einsog nossararnir segja, þetta reddast.
Kalli er byrjaður í skólanum og er bara rosa ánægður að vanda. Hann er meira að segja farinn að læra enn eitt tungumálið.... DÖNSKU...... Já já það hlýtur að ganga einsog allt annað.
Ég er á fullu í kynjafræðinni og norskunni og reikna með að útskrifast eftir eitt og hálft ár. Það er alla vega stefnan og samkvæmt mínum útreikningum þá á það alveg að takast. Nema ég vendi mínu kvæði í kross og taki líka BA í kynjafræði... hver veit. Það fer náttlega mest eftir efnum og aðstæðum.
Annað héðan... Agnes Lára er að fara að fermast og það var búið að binda fermingardag. 23. apríl eða sumardaginn fyrsta, hefur verið hefð í minni fjölskyldu, það eru allir fermdir þann daginn. En það getur verið að við verðum að breyta útaf vananum, það er svo sem ekkert nýtt að ég geri eitthvað sem allir hinir geri ekki.(allavega samkv. sumum...) þannig er mál með vexti að ég fékk kennsluáætlun í kynjafræðinni og ég er akkúrat að fara í próf 24.apríl til 25.apríl.. sem sagt sólarhrings heimapróf. og það er nú ekkert gaman að vera eitthvað að stressa sig f. próf á degi sem á að vera ánægjulegur f. alla í fjölsk. og ekki gæti ég notið dagsins á eftir heldur... þannig að ég er búin að senda meil á prestinn til að athuga hvort við megum breyta um dag. Þá ætlum við að reyna að hafa ferminguna þann 5.apríl sem er pálmasunnudagur. Það er ´líka bara fínasti dagur og fylgir hefðinni í Kalla fjölskyldu. (sem er "ekki" sumardagurinn fyrsti). (því það er bara fríkirkjan sem fermir þann daginn) (að ég held)...
Þannig er nú það.
Sem betur fer vorum við ekki búin að kaupa kerti og servíettur og gestabók og allt það sem þessu fylgir... eða panta sal eða neitt svoleiðis. við ætlum að hafa veisluna hér heima og reiknum með að það komi svona ca 70manns. með börnum og öllu.. þannig að það verður bara rosalega mikið stuð. Ég er á fullu að ákveða hvað ég á bjóða uppá því að sjálfsögðu þá ætla ég að gera allt sjálf, nema marsipantertu og kransaköku. þannig að þetta er bara gaman gaman. Ég meina ferming er bara einsog stór afmælisveisla. Er það ekki??????????
»
03.01.2009 00:16:27 / familienholm
Jæja gott fólk, gleðilegt ar og takk f. það gamla.
Héðan er það að frétta að ég er hætt að vinna og er núna orðin bara námsmaður. Ekki að það sé ekki meira en nóg. sérstaklegar ef maður ætlar að skrifa BA ritgerð einsog ég ætla að gera. ég er búin að komastað því að ég hef bara verið að fara í yfirborðið á námsefni mínu að undanförnu og það er kominn tími til að fara aðeins dýpra í námsefnið svo ég geti gert eitthvað af viti og skrifað góða BA ritgerð sem gefur færi á meira námi eða allavega betri vinnu en ég hef haft hingað til.
Kalli varð fertugur um daginn og þakka ég fyrir allargóðar óskir og gjafir f. hans hönd. Hann fékk meðal annars gjafakort í Kringluna og er búinn að versla sér jakkföt, skyrtu og bindi og frakka og á ennþá afgang af sínum afmælispeningum. Það má til gamans geta að núna í janúar 2009 eru liðin 17 ár síðan ég og Kalli byrjuðum saman og ennþá höngum við saman og ég er ekki frá því að við elskum hvort annað meira nú en áður. Er það ekki bara gott. jú mér finnst það. Hann er bara einstakur hann Kalli minn, og ég er bara ótrúlega heppin að eiga hann. hann er svo ánægður og glaður að vera í skóla og er bara að blómstra líkt og blómstrið eina, þetta á svo vel við hann. það er bara frábært að hlusta á hann og vita að honum líður vel. Það er einmitt það sem menntun á að gera,manni á að líða betur með umhverfið og sjálfan sig. þess vegna er ég líka hætt að vinna, svo ég geti lifað eitthvað líka. Það er of mikið að vinna og læra og vinna og læra, maður verður að fá að vera til líka. ég veit að það tekst. ég ætla að fá mér einhverja íhlaupa vinnu, hvort það er innan sjúkraliðabransans eða eitthvað annað, það verður bara aða koma í ljós.
Annar er ég bara ánægð með lífið, erað undirbúa fermingu í vor og þetta á allt eftir að glæðast, það er ég alveg viss um.
Góða nótt og allra bestu óskir um gleðilegt ar.
ZZZZZZZZZZZ góða nótt.
»
22.12.2008 23:54:51 / familienholm
Jæja þá eru 2 niðurstöður af 3 komnar.
Fékk 8 í kynjafræði og er bara þokkalega vel ánægð með það. Sérstaklega þar sem mér fanst ég bara ekki hafa lært nóg í vetur( allt of lítill tími)
Og 8 í norsk málfræði og málnotkun III (þetta var textagreining, ógeðslega erfitt og kröfurnar frekar miklar og ég var í alvöru með martröð útaf þessu prófi í 4 daga eftir próf. Þannig að ég er ýkt geðv. ánægð með að hafa náð og gott betur en það.
Kalli er búin að fá sínar niðurstöður, man ekki hvort e´g var eitthvað búin að skrifa um það. Hann fékk þrjár 9, eina 8, eitt 6.5 og eitt 6. Ég er ekkert smá ánægð með kallinn. Hann var sem sagt með ca 8 ímeðaleinkunn úr 6 fögum. Það er bara flott hjá kalli sem hefur ekki verið í skóla í nær 25 ár.... Stolt af honum :-)
»
16.12.2008 17:27:41 / familienholm
Hó hó hó. Já þá eru bæði jólasveinarnir og Björk komnir til byggða.
Það eru engar niðurstöður komnar úr prófum, en ég mun birta þær hér.. ef mér gengur vel. Annars fer ég bara á bömmer og skrifa bara fýlukarl hér á síðuna.
Ég hætti svo líka að vinna um áramótin, því égætla að verða námsmaður í fullu starfi. Sem sagt bara að einbeita mér að skólanum. Skynsamlegt í kreppunni...
mér líst bara geðveikt vel á þetta, við verðum þá bara fátækir námsmenn bæði 2 ( og börnin líka). þetta verður bara gaman.
»
27.11.2008 09:34:49 / familienholm
Jæja nú hverf ég úr samfélagi mannanna og inní samfélag brjálaðra stúdenta að lesa f. próf.
Kem aftur til byggða 12. des eða þar um bil.
Kv. Björkin
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|